Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Draumur útilegumannsins
Er laufið grær um landsins auðn
við leggjumst út við Snjóöldu.
Þú hjúfrast blítt við hjarta mitt
í Hreysinu við Snjóöldu.
Er laufið deyr um landsins auðn
og lindin frýs við snjóöldu
Þú hjúfrast blítt við hjarta mitt
í Hreysinu við Snjóöldu.
Er vetur fer með veðurhljóð
og veðragný um Snjóöldu
Þú hjúfrast blítt við hjarta mitt
í Hreysinu við Snjóöldu.
Er hylur ljórann hélurós
og herðir frost við Snjóöldu
Þú hjúfrast blítt við hjarta mitt
í Hreysinu við Snjóöldu.
Er vorið fer um vötnin blá
með villiblóm við Snjóöldu
Þú hjúfrast blítt við hjarta mitt
í Hreysinu við Snjóöldu.
Jón I. Bjarnason
