Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Flökku-Jói

Flakka , flakka til og frá,
flökku-Jóa eina þrá.
Eirðarleysi í æðum rann
og ævintýraþráin brann.

Ungur var að árum þá
er hans för að heiman lá.
Fór af stað í framaleit,
fótgangandi on´ úr sveit.

Flakka, flakka……….

Sigldi um höf og heiminn sá,
heljarmikill garpur þá.
Dansinn steig og drakk af lyst,
daðrað gat hann líka´og kysst.

Flakka, flakka……….

Flökku-Jói flakkar enn,
flestir þekkja slíka menn.
Flakk í blóð þeim borið er
og bezt á flakki una sér.

Flakka,flakka……..