Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Gæsamamma

Gæsamamma gekk af stað
með gæsabörnin smáu,
út á tún hún ætlaði
að éta grösin lágu.
Þá kom krummi krunk, krunk, krá
svo kolsvartur í framan.
Éta vildi’ hann unga smá,
og ekki var það gaman.

Gæsin hvæsti: „Farðu frá!
þú færð ei unga mína!“
Undir vængnum varði’ hún þá
veslingana sína.
En krummi sagði „Krunk, krunk, krá
nú kroppa ég þig í stélið,
og síðan tek ég unga smá,
og brýt þá alla í mélið.“

Þennan býsna ljóta leik
Lobba sá, og undur
var hún fljót að koma á kreik
með kjaftinn glenntan sundur,
svarta krumma óð hún að
og ætlaði hann að bíta,
þá fjótur krummi flaug af stað
því fjarska reið var „títa.“

Þá varð Gæsamamma glöð,
góð við sína krakka,
sagði: „Við skulum, hó, hæ, hröð
henni Lobbu þakka.
Þú hefur, tíka, lið mér léð;
þó lítil sé það borgun,
skaltu éta okkur með
okkar graut á morgun.“

Björn B. Birnir.