Hlutur í húfunni
22. mars, 2026
Hver stal kökunni
22. mars, 2026
Hlutur í húfunni
22. mars, 2026
Hver stal kökunni
22. mars, 2026

Til að leika þennan leik þarf að hafa einhverskonar hristu eða trommu. Það getur verið plastskál og sleif eða eitthvað sem að hringlar í. Einn stjórnar leiknum og slær á trommuna eða hristir hringluna. Á meðan hann gerir það labba allir um gólfið eins og tröllkarlar. En allt í einu stoppar sá sem trommar og þá eiga allir að frjósa í þeim stellingum sem þeir eru í. Trommarinn velur þann sem honum finnst flottastur og er sá næsti trommari.

Góða skemmtun!