Trausti veðurfræðingur
31. mars, 2026Til fræmeistara Garðyrkjufélags Íslands
31. mars, 2026Án titils
Einum hef ég unnað hér
yndislegum sveini.
Vera æ ég vil hjá þér,
vinurinn minn eini.
—
Ó, hve mundi undurfljótt
öllum sorgum linna,
ef ég fengi nú í nótt
nálægð þína finna.
—
Flúinn sálarfriður er,
falin ást ei dvínar.
Blíðan sem að bauðstu mér
brennir varir mínar.
—
Í faðmi þínum finn ég best
hve fögur ástin er.
Þá bærist mér í brjósti flest
sem best ég veitt get þér.
—
Þegar felur þokan grá
þessa fögru heima,
sólarylinn finn ég frá
faðmi þínum streyma.
—
Ef þú sýnir aðeins mér
undraveröld þína,
ég skal gefa aftur þér
alla blíðu mína.
—
Ekki þrátta nú á ný.
Nái ég sáttum þínum,
lægja máttu ókyrrð í
eðlisþáttum mínum.
—
Allt mitt líf og innri ró
er í hendi þinni,
ástin sem að áður bjó
innst í sálu minni.
—
Víst mun hlýna vinur minn,
veröld skína bjarta.
st til þín ég ennþá finn<
innst í mínu hjarta.
