Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Glaumbær

Í Glaumbæ snemma um haust,
þú inn í veröld mína braust,
þitt hjarta mínu stal,
á dansgólfinu niðr´í sal,
svo glæst og girnileg,
og ég man það svo vel unaðsleg.

Já margar góðar minningar,
ráku á fjörur mínar þar,
við kynntumst ég og þú
sú minning sækir á mig nú.
Með þrá og eftirsjá ó já,
um Glaumbæ ég hugsa þá.

En Glaumbær brann og fólkið fann,
sér annan samastað,
í hugum margra var þá brotið blað.

En svo þegar flétt er í,
bókinni um liðna tíð
og fyrir verður blað
með nafni þínum á ljúfum stað,
með þrá og eftirsjá ó, já
um Glaumbæ ég hugsa þá.

Jóhann G. Jóhannsson