Spurningaleikur
22. mars, 2026
Stólaleikur
22. mars, 2026
Spurningaleikur
22. mars, 2026
Stólaleikur
22. mars, 2026

Best er að þátttakendur séu ekki færri en tíu og þarf fjöldi þeirra að standa á oddatölu (9-11-13-15-o.s.frv.) Tveir eru um hvern stól annar situr á honum en hinn stendur fyrir aftan stólinn.

Staki þátttakandinn er ekkjumaðurinn (hvort sem það er strákur eða stelpa). Hann stendur fyrir aftan stólinn. Þeir sem sitja á stólunum eru konur og eiga að horfa á ekkjumanninn. Karlarnir standa fyrir aftan stólana og eiga að passa að konurnar sleppi ekki frá þeim. Karlarnir mega ekki horfa upp, eiga að horfa beint niður á konuna sína. Ekkjumaðurinn á nú að reyna að blikka einhverja konuna til sín. Konurnar eiga að reyna að komast til ekkjumannsins.

Takist „eiginmanninum“ að klukka konuna sína kemst hún ekki í burtu. En…eiginmaðurinn má ekki hlaupa á eftir henni. Hann verður að standa kyrr á sínum stað. Sleppi konan er eiginmaðurinn orðinn ekkjumaður og verður að reyna að blikka til sín aðra konu.

Góða skemmtun!