Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Gömul klaustursaga

Drottinn vér biðjum nú bænir,
bljúgir og viljum hér tjá,
hvað hann, vor ábóti, sem er nú sæll,
sjálfur oss skýrt hefur frá.

Ræningjahópur í helli bjó,
höfðingi þar var Skuggasveinn.
Flakkandi’ um nætur þeir myrtu menn,
mæltu oft last um Krist.

Silfur og gull og fjallafé
fólu í hellis myrkum geim.
Fallegri stúlku, hann svarti Sveinn
Svönu frá Hólum stal.

Drottinn vér biðjum nú bænir,
bljúgir og viljum hér tjá,
hvað hann, vor ábóti, sem er nú sæll,
sjálfur oss skýrt hefur frá.

Faðmaði’ hann stúlkuna fast hvern dag,
fékkst hverja nátt við dráp og rán.
Síðar meir vaknaði samviskan,
Sveinn fór að iðrast þá.

Gekk hann ei lengur glæpaveg
grét nú sín fyrri dráp og rán,
fór svo í klaustur hann svarti Sveinn,
sættist við Guð og menn.

Drottinn vér biðjum nú bænir,
bljúgir og viljum hér tjá,
hvað hann, vor ábóti, sem er nú sæll,
sjálfur oss skýrt hefur frá.

Þýð: Þorsteinn Gíslason