Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Gunnukvæði
Fyrst allir aðrir þegja
þá ætla ég að segja:
Eitt sinn var séleg meyja
er sveinum mætti tveim.
:/: Bitti nú, bitti nú,
hopp og hí og tra, la la :/:
Eitt sinn var séleg meyja
er sveinum mætti tveim.
Og sólin var þá sigin,
en sæll var máninn stiginn,
og bjarminn hans var hniginn
um hrímgan foldargeim.
Bitti nú,......
Þeir heilsuðu henni bráðir
og hrifnir voru báðir
en ekki alveg gáðir,
sem ekki er sögu vert.
Bitti nú,......
Á stígnum þar þeir stansa,
sem stjörnur augun glansa.
Hún vildi ekki ansa,
sem almennt þó er gert.
Bitti nú,......
Þeir settu upp sæta munna
og sögðu: „Elsku Gunna,
þér einni viljum unna,
og engri nema þér.
Bitti nú,......
Ó, heyrðu Gunna góða,
þú gimsteinn meðal fljóða!
Þér bankó viljum bjóða,
sko! botélið er hér.“
Bitti nú,......
En svo var Gunna glettin,
hún greip þá óðar sprettin
og hljóp sem hryssa létt inn
í hús eitt nálægt þar.
Bitti nú,......
Þeir sveinar stóðu á storðu,
og stíft á dyrnar horfðu.
En inn þeir ekki þorðu,
sem alveg hárrétt var.
Bitti nú,......
Þeir sögðu: „Svona er Gunna,
og selurinn má henni unna.
Við eigum æðri brunna,
sem eru betur til.“
Bitti nú,......
Þeir fóru að hitta Halsberg
og hugguðu sig við Carlsberg,
og gamli, gamli Carlsberg
þeim gerði bestu skil.
Bitti nú,......
Og svo hér sögu léttir,
en sagt var daginn eftir
og þóttu fjarska fréttir,
að fullir yrðu þeir.
Bitti nú,......
En þeir, sem kjafthátt kunnu
og kenningunum unnu,
um tilræðið við Gunnu
þó töluðu ennþá meir.
Bitti nú,......
Hannes Hafstein
