Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Hattarasöngur

Úr Lísu í Undralandi

Ertu óhress vinurinn,
ertu kannske' að sligast undan sköttunum?
Hertu' upp hugann góurinn,
því hamingjan er komin undir höttunum.
Við kippum þessu strax í lag
því hattamennskan er mitt fag.
Ég er á höttunum.

Hefðarfrúr og tignarmær,
þessa hatta bera þær á jólunum.
Þessi litur er svo skær
hann tilvalinn er fyrir þær í skólunum.
Þessi' er fyrir jarðarfarir,
sálumessu' og blysfarir.
Ég er á höttunum.

Og þessi hattur hann er fyrir
fólk sem „fílar“ sig á skemmtistöðunum.
Þessi' er „great“ og „special made“
fyrir þær sem eru' í fremstu röðunum.
Hér alpahúfu sjáið þið
sem reyndar passar alltaf við.
Ég er á höttunum.

Þessi hattur hentar þér
ef hylja þarftu bauga undir augunum.
Þessi reddar lagningunni´á kerlingum
sem bleyta sig í laugunum.
Hér gengur inn með bros á vör
héragrey með brúðarslör.
Ég er á höttunum.

Sigurður J. Grétarsson