Limrur
23. apríl, 2026Þegar vinstri menn unnu kosningarnar
23. apríl, 2026Sléttubönd
Oddhent sléttubönd
Dýrum háttum miðla mátt,
magna þáttar gæði.
Hýrum dráttum auðga átt
okkar sáttakvæði.
—
Sent í vísnaþátt:
Svíkur stjórnin, ekki er
aflagt brauðið neyðar.
Víkur dyggðum sjaldan sér
sínar brautir greiðar.
og ef svo skyldi fara að ný stjórn taki við bráðlega vona ég bara að við getum lesið vísuna afturábak:
Greiðar brautir sínar sér,
sjaldan dyggðum víkur.
Neyðarbrauðið aflagt er,
ekki stjórnin svíkur.
—
Vertu stilltur, aldrei átt
egna villtan fola.
Sértu piltur manndóms, mátt
meyjar trylltar þola.
—
Byrir góðir móta margt,
magnast hugaröndin.
Fyrir þínum vitum vart
vefjast sléttuböndin.
—
Dýrðarljóma sendir sól,
sigrar myrkrið nætur.
Sumarblóma hvítum kjól
klæðast fjallarætur.
—
Þessi skiptir um meiningu afturábak:
Bylur regnið, sjaldan sól
sínum geislum skartar.
Hylur gleði, engum ól
yndisvonir bjartar.
—
Fögnum Braga hylli hljótt,
hömpum landans óði,
mögnum arfinn forna fljótt,
fyllum vísnasjóði.
