Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Heimaey
Hún rís úr sumarsænum
í silkimjúkum blænum
með fjöll í feldi grænum
mín fagra Heimaey.
Við lífsins fögnuð fundum
á fyrstu bernskustundum
er sólin hló á sundum
og sigldu himinfley.
Hér réri hann afi á árabát
og undi sér best á sjó,
en amma hafði á öldunni gát
og aflann úr fjörunni dró.
Er vindur lék í voðum
og vængir lyftu gnoðum
þeir höfðu byr hjá boðum
á blíðvinar fund.
Og enn þeir fiskinn fanga
við Flúðir, Svið og Dranga,
þó stormur strjúki vanga
það stælir karlmannslund.
Og allt var skini skartað
og skjól við móðurhjartað.
Hér leið mín bernskan bjarta
við bjargfuglaklið.
Er vorið lagði að landi
var líf í fjörusandi,
þá ríkti unaðsandi
í ætt við báru klið.
Þegar í fjarska mig báturinn ber
og boðinn úr djúpinu rís,
Eyjan mín kæra, ég óska hjá þér
eigi ég faðmlögin vís.
Þó löngum beri af leiðum
á lífsins vegi breiðum
þá finnst á fornum eiðum
margt falið hjartamein.
En okkar æskufuna
við ættum þó að muna
á meðan öldur una
í ást við fjörustein.
Ási í Bæ
