Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Alla leið heim

Alla leið heim fagnandi ég fer,
Frelsarinn minn góði bíður eftir mér.
Ljósið hans mér lýsir, leiðin verður greið,
ég ætla þangað heim, alla leið.

Ég hlakka til er hliðið gullna sé,
í helgum ljóma það skín.
Því einmitt þar hún endar ferðin mín,
ég ætla þangað heim alla leið.

Mín sorg og stríð að engu orðið þá
er undrið mesta ég finn.
Og Herrann segir já, vertu velkominn,
ég ætla þangað heim alla leið.