Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Hittumst heil
Er einmana geng ég á ókunnum stað
er einasta gleðin að hugsa um það
hve þá verður sælt er til þín liggja spor
og þar verður fagnað af tveim.
Að liðinni nótt yfir land rennur sól,
þá lifnar það allt sem í frostinu kól.
Og ást mín og þrá eru vermandi vor
og, vinur, þær bera mig heim.
Kristján frá Djúpalæk
