Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Hjarta mitt er við heiminn bundið
Hjarta mitt er við heiminn bundið,
til himins langar það ei svo fljótt.
Við minnar Ástu fætur fundið
fullsælu hef ég dag og nótt,
enda þó að ég aldrei megi
ofar kyssa en á miðja rist
finnst mér þó samt hún eftir eigi
af mér betur að verða kysst.
Þú lyfit stundum fötum frá
fæturna svo ég megi líta,
bjarta handleggi og brjóstið hvíta.
Þú veist hvað ég elska það og þá
þér er víst gleði að sjá mig syrgja
því svo ferðu aftur strax að byrgja
og eftir því sem þyngir yfir mér
eftir því liggur vel á þér.
Páll Ólafsson
