Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Horfðu á björtu hliðarnar

Lát huggast litla barnið mitt,
sjá, veröldin er ekki ill
og eftir þennan dag
þá kemur dagur ef til vill.

Ef þú vilt barn mitt læra
horfðu þá á fréttirnar,
á þrengingar og sprengingar
og björtu hliðarnar.

Horfðu á björtu hliðarnar,
heimurinn hann gæti verið verri.
Horfðu á björtu hliðarnar,
heimurinn á ennþá menn eins og Sverri,
sem allt lýsa upp.

Þú átt að elska mannkynið
og meta gáfur þess,
því mannkynið það elskar frið
og hatar Rudolf Hess.

Lokaðu nú augunum
og líttu glaður á
þá ljósu punkta í myrkrinu,
sem öllum tekst að sjá.

Horfðu á björtu hliðarnar,
heimurinn hann gæti verið verri.
Horfðu á björtu hliðarnar,
heimurinn á ennþá menn eins og Sverri,
sem allt lýsa upp.

Horfðu á björtu hliðarnar,
hungursneyð er fjarri Íslandsströndum.
Horfðu á björtu hliðarnar,
heimsstyrjaldir verða í öðrum löndum,
svo vertu nú sæll.

Sverrir Stormsker