Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Hvar er sú ást?

Hvar er sú ást sem okkur batt?
Hvar er sú dýrð sem fékk mig glatt?
Elligul mynd, óljós og máð frá æsku minni.

Hvar er sú ást, hvar brosin blíð,
hvar blómin öll frá fyrri tíð?
Mynd sem er nú minning í hugans inni.

Vindurinn bar bros þitt í hlað.
Hló ég mitt svar, hjartað við kvað.
Hvað er svo eftir af því nú? Inntu mér það.

Fátækleg hús, heimur sem var
huganum kær, það er mitt svar.
Í tímans þögn, fortíð mín öll falin er þar.

Þýð: Jón Óskar