Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Í fögrum dal

Í fögrum dal, hjá fjalla bláum straumi,
ég fríða meyju leit í sætum draumi.
Það blöktu lausir lokkar um ljósan meyjar háls.
Með blíðu brosi’ á munni hún byrjun tók svo máls:
Sæludal sólargeislar hlúa,
sæludal sælt er í að búa,
sæludal.

Um brattan tind, þótt blási köldum anda
ei byljir storma, dalnum fagra granda,
því honum helgar vættir með hlífðar skýla arm
og hér er hlýtt í hlíðum og heitt við meyjar barm.
Hjarta trútt hafa snótir dala,
hjarta trútt, hreint sem lindin svala,
hjarta trútt.

Jón Thoroddssen