Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Eitt lag enn

Með þér - verð ég, eins og vera ber,
alveg trylltur, kemst í takt við þig, þú tælir mig.
Ég fer eftir því sem augað sér.
Þegar hugur girnist heimta ég, verð hættuleg.

Eitt lag enn,
ekta sveiflu og hér þreytist enginn,
þú skalt dansa, það sem eftir er
Einn takt til! Tónar leika sér að
því sem heillar mig
og hæfir beint í hjartastað.

Hjá mér engin spurning um það er,
þegar mætumst við á miðri leið, ég magna seið
Það er ofsa fjör sem fylgir þér
Svo ég einhvern veginn umturnast, fæ æðiskast

Eitt lag enn,
ekta sveiflu og hér þreytist enginn,
þú skalt dansa, það sem eftir er.
Einn takt til! Tónar leika sér að
því sem heillar mig
og hæfir, beint í hjartastað

Ég er frjáls í faðmi þér.
Við förum hvert sem er
Látum töfra lífsins taka' af okkur völd

Eitt lag enn,
ekta sveiflu og hér þreytist enginn,
þú skalt dansa, það sem eftir er.
Einn takt til! Taflið snýst um það eitt
að við höldum áfram hraðar, hikum aldrei neitt

Að við höldum áfram, hraðar nú.
Hikum aldrei, ég og þú, - við neitt

Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson