Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Jón er kominn heim

Ég er hýr og ég er rjóð,
Jón er kominn heim.
Ég er glöð og ég er góð,
Jón er kominn heim
Kvíði mæða og angist er,
aftur vikið burt frá mér
því Jón er kominn heim.

Vorkvöld eitt þá fór hann Jón í fússi burt,
föl og hnýpin eftir sat ég hér.
En brennheit var mín þrá og býsn ég eftir sá
og brosið hvarf af andlitinu' á mér.

Ég er hýr og ég er rjóð.......

Loks í gær var drepið létt á dyr hjá mér,
Drottinn minn, og úti stóð hann Jón.
Þó víða færir þú, þú varla fyndir nú
í veröldinni lukkulegri hjón.

Ég er hýr og ég er rjóð.......

Iðunn Steinsdóttir