Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Kátir dagar
Kátir dagar :/: koma’ og fara :/:
hvað er það að :/: lifa’ og spara :/:
dátt við syngjum :/: dönsum nætur :/:
dröttumst oftast :/: seint á fætur :/:
Þannig áfram, áfram, áfram ævin líður
undur fljótt og tíminn aldrei bíður, bíður.
Svífa’ í sælum draumi svanni og halur fríður,
syngja’ og dansa og tra-la-la-la-la.
Vífin ungu :/: vefjum örmum :/:
villumst stundum :/: gleymum hörmum :/:
oft um nætur :/: ástin brennur :/:
öll á burt er :/: dagur rennur :/:
Þannig áfram, áfram…………………
Jenni Jóns
