Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Kirkjuhvoll
Hún amma mín það sagði mér: „Um sólarlagsbil
á sunnudögum gakk þú ei Kirkjuhvols til.
Þú mátt ei trufla aftansöng álfanna þar,
þeir eiga kirkju’ í hvolnum og barn er ég var
í hvolnum kvað við samhljómur klukknanna’ á kvöldin.‛‛
Hún trúði þessu’ hún amma mín, ég efaði ei það
að allt það væri rétt er hún sagði’ um þann stað.
Ég leit því jafnan hvolsins með lotningu til
og lék mér ei þar nærri, um sólarlagsbil.
Ég þóttist heyra samhljóminn klukknanna’ á kvöldin.
Guðmundur Guðmundsson
