Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Kokkur á kútter frá Sandi

Ég er kokkur á kútter frá Sandi.
Ég fæ kjaftshögg hvern einasta dag,
og ekki líður mér betur í landi
er ég lendi við konuna í slag.

Hún er tvígild að afli hún Tóta,
að ég tali' ekki um sé hún reið,
enda tek ég þá fljótast til fóta,
því flótti er mín einasta leið.

Ég var ungur er Tóta mig tældi,
okkar trúlofun samstundist birt.
Og í hjónaband þvínæst mér þvældi,
það var óveðursblandið og stirt.

Því þegar frá leið hljóp fjandinn í svínið
og er fædd voru ellefu börn
þá var búið með gaman og grínið,
þá var grátur mín einasta vörn.

Ef ég lifað fæ lengur en Tóta,
er hún leggur á eilífðarbraut
skal ég dansa og daganna njóta,
elda dýrindis rúsínugraut.

En mig hryllir ef hittumst við aftur
er ég héðan af jörðinni fer
nema' að einhver mér ókunnur kraftur
komi óðar og liðsinni mér.

Örnólfur í Vík