Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Eyþór

Einn er piltur ofursmár,
Eyþór snáðinn heitir,
glóeygður með gullið hár,
gleði okkur veitir.

Ást úr þínum augum skín
er þú til mín gengur.
Bið ég Guð að gæta þín
góði ömmudrengur.

Sofðu blessað barnið mitt.
Birtan dofnað hefur,
en hún mamma yndið sitt
örmum hlýjum vefur.

Margrét Ólafsdóttir