Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Kveðjustund

Ó, vertu sæll ég kveð þig kæri vinur

klökk af þrá ég bið þig gleymdu mér.

Vertu sæll við sjáumst aldrei aldrei á ný

því ást mín er horfin með þér.

Ég aldrei framar elska mun neinn annan

eilífð þrá í huga mínum er.

Ó vertu sæll um eilífð elsku vinur

og ást mín er horfin með þér.

Þegar sól er sest á bak við fjöllin

sérhvert kvöld þá hugsa ég til þín.

Minningin hún lifir þó að annað hverfi mér allt

það eina er huggunin mín.

Kveðju mína kvöldsólin þér færi

kossinn minn í geislum hennar er.

Ó vertu sæll um eilífð elsku vinur

og ást mín er horfin með þér.

Höf. ókunnur