Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Ave María
Þú blíða drottning, bjartari en sólin,
þú biður fyrir lifendum og dauðum.
Hríf um eilífð oss frá heljar nauðum.
Ave María, Ave María, Ave María,
gef þeim himnesk jólin.
Bið þinn son að vernda oss frá villu.
Í veröld eru margir stígar hálir.
Um eilífð vernda allar látnar sálir,
Ave María, Ave María, Ave María,
frelsa þær frá illu.
Indriði Einarsson
