Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Litirnir

Ég heiti Óli rauði og allir þekkja mig
því allir jólasveinar nota rautt í föt á sig.
Rauð eru eplin góðu og reyniberin smá
og rauður er hann kjóllinn sem hún Gunna á að fá.

Já, við litum og litum, við litum stórt og smátt.
Við litum grænt og brúnt og rautt og gult og fagurblátt.
Já, við litum og við litum allt sem litir geta prýtt,
og líki okkur það ekki við byrjum upp á nýtt.

Ég heiti Stjáni blái og blátt ég lita flest.
berjaklasa, fjóluvönd og ævintýrahest.
Blá eru líka vötnin og blár er fjörðurinn,
og bláa lítinn notar þú á sjálfan himininn.

Já við litum og við...

Ég heiti Gústi græni og á greniskóga og hey
þú getur notað litinn minn, á vetrum sést ég ei.
En þegar vorið kemur, þá kem ég fljótt í ljós
og klæði grænu engin, tún og blöð á hverri rós.

Já við litum og við...

Ég heiti Geiri guli og er gulur eins og sól.
Gulur eins og fífill eða kertaljós um jól.
Og blandaður með rauðu er ég eins og kvöldroðinn.
Með ósköp litlu bláu eins grænn og skógurinn.

Já við litum og við...

Sigríður Ingimarsdóttir