Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Lýsa geislar um grundir
Lýsa geislar um grundir, glóir engi og tún.
Unir bærinn sér undir, ægifagurri brún.
Það ég ungur að árum, átti gleðinnar spor.
Hljóp um hagana, heilu dagana.
Bjart er bernskunnar vor.
Æskuvinirnir allir, unna dalanna kyrrð.
Hulduhamarinn, hóllinn, tindurinn,
lindin, lækurinn, litli kofinn minn.
Nú er hugurinn heima, hjartað örara slær.
Stríðar minningar streyma, stöðugt færist ég nær.
Skip mitt líður að landi, létt ég heimleiðis sný.
Ljúfu leiðina, litlu heiðina, glaður geng ég á ný.
Æskuvinirnir allir ........
Nú er hugurinn heima, hjartað örara slær......
Birgir Marinósson
