Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Manstu okkar fyrsta fund
Manstu okkar fyrsta fund,
forðum daga í Eyjum?
Barnaleg og blíð í lund,
barst‘ af öðrum meyjum.
Ég var ungur eins og þú,
einn af þorpsins snáðum.
Sama von og sama trú,
sama þrá hjá báðum.
Bernskuleikir breyttust þá,
blóm úr hnöppum sprungu.
Nýjum lit á lífið brá,
lærðum nýja tungu.
Allt var gott og allt var nýtt,
svo yndislega frítt.
Og sumarsólin skein
á sundin blá
og út við unnarstein
lék aldan smá.
Og ástin helg og hrein
lét hjörtun slá.
Og sumarsólin skein
á sundin blá.
Manstu hvað ég með þér fór
marga skemmtigöngu
inn í Dal og upp í Kór,
undir Stóru-Löngu?
Upp í Hvíld og Löngulág
lágu stundum sporin.
Kannast þú við Klif og Há?
Komstu þar á vorin?
Inn um Flatir oft var kátt,
æskan fór með völdin.
Hlaupið, leikið, dansað dátt
draumblíð sumarkvöldin.
Fuglinn uppi í fjalltó,
hann fékk ei næturó.
Og sumarsólin skein
á sundin blá...
Enn skín sól á sundin blá
sumarlangt í Eyjum.
Sama von og sama þrá
sveinum hjá og meyjum.
Enn er leikið létt og dátt
líkt og fyrr á dögum.
Fyrsta ástin á sinn þátt
enn í mörgum sögum.
Örlögin á önnur sund
okkar stýrðu fleyjum.
Manstu okkar fyrsta fund
Fagurt var í Eyjum
æskuvors í morgunmund.
Ég man það alla stund.
Og sumarsólin skein
á sundin blá...
Örn Arnarson
