Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Músahjón
Músahjón
(Gamalt viðkvæði)
Ég
gekk út í skógi og skógarmýs ég sá
á skán safna berjum og mylningum smá.
En fagurt, fagurt gullu gaukar
og grænir spruttu laukar.
Í skógi var móða og músahjónin þar
af matforða hlóðu hið kringlótta far.
En fagurt, fagurt gullu gaukar
og grænir spruttu laukar.
Með löppunum ýttu þau ferjunni á flot,
í fæturna urðu þau músahjónin vot.
En fagurt, fagurt gullu gaukar
og grænir spruttu laukar.
Og sitt hvoru megin þau settust á fley
og sáu vandlega’ um að það hallaðist ei.
En fagurt, fagurt gullu gaukar
og grænir spruttu laukar.
Og síðan með rófunum reru þau létt
og renndu svo að landi við forsælublett.
En fagurt, fagurt gullu gaukar
og grænir spruttu laukar.
Í holuna báru þau berin sín af,
barnahópur vært þar í hreiðrinu svaf.
En fagurt, fagurt gullu gaukar
og grænir spruttu laukar.
Mýs fyrir komandi kólgunum sjá,
kennt hefur þeim einhver sem vit hafði á,
fyrr en, fyrr en gullu gaukar
og grænir spruttu laukar.
