Til íhugunar
31. mars, 2026Á sumardaginn fyrsta
31. mars, 2026Vegavandræði
Margir utanbæjarmenn létu að því liggja í útvarpsþætti að Reykvíkingar væru ósjálfbjarga í umferðinni ef einhver snjóföl væri.
Vont er hér á vegaköflum
verða fastur af og til.
Bjarglaus sitja í skollans sköflum,
skafrenningi og hríðarbyl.
Þarna mig af kulda klæjar,
kjarklaus horfi snjóinn á.
Æ, hve vildi ég utanbæjar-
ofurmenni vera þá.
