1. maí 1981
23. apríl, 2026
Sólaróður
23. apríl, 2026
1. maí 1981
23. apríl, 2026
Sólaróður
23. apríl, 2026

Þrá

Er vorið kemur, vindur aftur hlýnar
vaknar þráin til þín dýra land.
Í huga sé ég hreinar myndir þínar
með háreist fjöll og svartan brunasand.

Nú færist líf í foldarþekju alla
sem falin var af snjóalögum hám.
Úr klakaböndum losna lækir fjalla
og leika tekur silungur í ám.

Og inn á heiðum fríðar lindir ljóða
við lágar jurtir, gróðurvinjum í.
Nú ljómar allt, því landið okkar góða
er litadýrð að klæðast, enn á ný.