Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Ódauðlega Vín

Sú heitasta þrá, sem hjarta mitt á,
að vera nú horfinn til þín.
Í gleði og sorg um götur og torg
þar sem glampandi vorsólin skín,
og söngfuglahreim er seiddi mig heim
og svellandi valsanna klið.
Á sælunnar stund, út í laufgrænum lund,
þar löngum ég undi mér við.

Nú heyri ég sungið lokkandi ljóð,
er læsist og æsir vort hold og blóð.

Vín, Vin þú aðeins ein,
átt mína þrá bæði skær og hrein,
með glæstum sölum, forn og fríð,
fegurstu ungmeyjarbrosin þýð.
Vín, Vín þú aðeins ein
átt mína þrá bæði skær og hrein.
Glaður ég undi við ástarljóð þín
þú æskuglaða Vín.

Höf. ókunnur