Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Óli lokbrá
Blunda þú nú barnið mitt,
bráðum kemur nótt.
Óli lokbrá læðist inn,
létt og ofur hljótt.
Hann mun sögur segja þér
sólskinslöndum frá,
þar sem gróa gullin blóm,
græn og rauð og blá.
En yfir þér englar vaka,
þeir elska sinn litla vin,
og gullvængjum blítt þeir blaka
við blikandi stjörnuskin.
Óli lokbrá leiðir þig
létt um draumsins svið,
heillar yfir barnsins brá
blíðan næturfrið.
Jakob Hafstein
