Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Reyndu aftur
Þú reyndir allt, til þess að ræða við mig
Í gegnum tíðina ég hlustaði ekki á þig
Ég gekk áfram minn veg, niður til heljar hér um bil
Reyndu aftur, ég bæði sé og veit og skil
Nú hvert sem er, skal ég fylgja þér
Yfir Esjuna til tunglsins, trúðu mér
Ég gekk minn breiða veg, niður til heljar hér um bil
Reyndu aftur, ég bæði sé og veit og skil
Magnús Eiríksson
