Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Róninn
Undir
gömlum árabát er næturstaður manns.
Kassi merktur Tuborg öli er eina mublan hans.
Stundar ekki vinnu bara betlar lítið eitt.
Í bláleitt glas af kogara er hverri krónu eitt.
Fátt
eitt skiptir máli og hann fréttir aldrei neitt,
furðulega rólegur samt er hann yfirleitt.
Fólki því sem finnst hann vera róni og flökkudýr
er einnig fjarlægt bölið sem í brennivíni býr.
Hann
átti eitt sinn fjölskyldu, já bæði bíl og hús.
Bakkus tók það frá honum nú eru þeir tveir dús.
Og fólki er svo sem sama þó að róni spræni í brók,
og stolt hans var það fyrsta sem hann Bakkus gamli tók.
Nú er
það svo afstætt hver er aumingi og svín.
Á dómsins æðsta degi drekkur róninn máske vín
við háborðið með Pétri og himna feðgunum.
Í hlýju þornar hlandið úr rónabuxunum.
Magnús Eiríksson
