Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Smávinir fagrir
(Úr Hulduljóðum)
Smávinir
fagrir, foldar skart,
fifill í haga rauð og blá
brekkusóley, við mættum margt
muna hvort öðru´ að segja frá.
Prýðið þér lengi landið það,
sem lífandi guðs hefur fundið stað
ástarsælan, því ástin hans
allstaðar fyllir þarfir manns.
Vissi
ég áður voruð þér,
vallarstjörnur um breiða grund,
fegurstu leiðarljósin mér,
lék ég að yður marga stund;
nú hef ég sjóinn séð um hríð
og sílalætin smá og tíð,
munurinn raunar enginn er
því allt um lífið vitni ber.
Faðir
og vinur alls sem er!
annastu þennan græna reit;
blessaðu faðir blómin hér;
blessaðu þau í hverri sveit.
Vesalings sóley! sérðu mig.
Sofðu nú vært og byrgðu þig;
hægur er dúr á daggarnótt,
dreymi þig ljósið, sofðu rótt.
Jónas Hallgrímsson
