Séð frá Langadal í Þórsmörk
21. mars, 2026
Séð frá Langadal í Þórsmörk
21. mars, 2026

Vetrargosi

Er hafði lamað hugans þor
harður veturinn
sér vaggaði í vorgolunni
vetrargosinn minn
og sagði við mig: „Sérðu ei
hvað sólin hækkar ört,
að vetur undan vori flýr
og verður nóttin björt.
Því skaltu lofa lífsins gang
og líta á blómin þín.“
Svo sperrti hann sinn hvíta koll
og kíkti upp til mín.

Þá fannst mér losna fjötrarnir
sem frostið harða batt
og leiðindunum undir eins
ég út í buskann hratt.
Á augabragði annan svip
mín undraveröld tók
og litli góði gesturinn
á gleði mína jók.
Hann vissi allan veturinn
um vorsins fyrirheit
og kepptist við að komast upp
úr köldum gróðurreit.

Já, þó mér hafi stundum strítt
sú staðreynd, ótrúleg,
þá varstu litli vetrargosi
vitrari en ég.