Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Söngur djáknans

Áin var alltaf að vaxa
Með hvítan blett í hnakkanum
hímdi ég undir bakkanum,
fór svo á bak honum Faxa,
á harða spretti heim til þín,
hér er ég kominn, Garún mín.
Brátt fara beinin að glansa.
Það skrölta á mér lúkurnar
með skinnlausar kjúkurnar.
Brúður, ég býð þér að dansa
ballett við dauðan mann.
Ég bið þig mín ljúfa að lengja ekki töfina.
Mér leiðist það alveg hreint óskaplega
að þurfa’ að leggjast aleinn oní gröfina.
Á öruggum ávaxtabransa,
eninga meninga,
pabbi þinn græðir peninga.
Brúður, ég býð þér að dansa
ballett við dauðan mann.

Jónas Árnason