Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Þungt ymur þorrinn
Sestu hérna, sonur,
sestu mér hjá
meðan þungt ymur þorrinn
þekjunni á.
Þungt ymur þorrinn,
þrengir að með snjó.
Komdu og sestu hérna, sonur.
Þei, þei og ró.
Upp í æfistigann
árin bera þig;
sú kemur, kemur tíðin
að kveður þú mig
Hvert sem leið þín liggur
á landi eða sjó,
sýndu óvild engum manni.
Þei, þei og ró.
Liggi lítilmagninn,
lágt í öskustó,
reisi hönd þín hann á fætur.
Þei þei og ró.
Engan órétt þoldu;
aldrei láttu þó
þínu hjarta hatrið spilla.
Þei, þei og ró.
Þungt ymur þorrinn
þrengir að með snjó.
Komdu og sestu hérna, sonur.
Þei, þei og ró.
Jónas Árnason
