Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Óli rokkari

Óli rokkari

Áður var svo friðsælt í sveit.
Engan stað á jörðu ég veit
yndislegri henni um vor,
aldrei dó þar nokkur úr hor.
Húfu bar þá hreppstjórinn
og hristi pottlu oddvitinn
með búfé á beit.

Upp í Brekku bjó hann Óli
undir brattri hlíð í skjóli.
Átti börn og buru og frú
áttatíu kindur og kú.
Lifði´ af því sem landið gaf
og flesta næstur fast hann svaf
sem frúin hans veit.

Óli fór á ball í bæinn
borgina sem er við sæinn
kvaddi með sér kerlu sína
kvíðafull þá var hún Stína.
Óli vildi ekki stansa
ólmur vildi bara dans
rúmbu og rokk.

Eftir þetta rokka alla tíð
Óli gamli og Stína ár og síð.
Krakkarnir og kýrnar kunna rokk.
Kátur galar haninn alltaf rokk.
Hreppstjórinn er húfulaus
og oddvitinn er ekki laus
við rúmbu og rokk.

Jón Sigurðsson