Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Víman

Lifum daginn aðeins betur
út í æsar hverja stund.
Vitum öll þegar líður vetur
nýju vori við eigum fund.

Margir vaða í villu og svíma
veik er sú skíma sem læðist inn.
Veistu´að gleðin er besta víman
hleyptu gleði inn í huga þinn.

Sólin hækkar með hverjum degi
lítið hænufet sérhvern dag.
Vertu glaður á þínum vegi
veröld brosir þá þér í hag.

Margir vaða í villu og svíma
veik er sú skíma
sem læðist inn.
Veistu´að gleðin er besta víman
hleyptu gleði inn í huga þinn.