Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Vinarkveðja

Besti vinur bak við fjöllin háu,
blærinn flytur mín kveðjuorð til þín,
hvíslar í eyru ljúfu ljóði smáu,
löng er biðin uns kemur þú til mín.

Manstu ekki sumarkvöldin sælu,
við sátum tvo ein við dalsins tæru lind
og hlýddum saman hljóð á hörpu minnar óð
og ortum fögur ástarljóð.

Nú ég vaki um nætur og vænti þín.
Það vorar allt grætur þig ástin mín.
Ég heyri vorfugla kvaka komdu vinur til baka,
þá við vökum og syngjum meðan vornóttin dvín.

Theódór Einarsson