Frúin í Hamborg
22. mars, 2026Spurningaleikur
22. mars, 2026Þetta er samtalsleikur fyrir tvær persónur sem við köllum hér nr.1 og nr.2. Í upphafi leiks segja þær:
1) „Skip mitt er komið að landi.“
2) „Hvað hefur það að færa?“
1) „Þrjá unga sveina.“ (eða meyjar ef viðmælandi er karlkyns)
2) „Hvernig voru þeir í hátt?“
1) „Sá fyrsti, þegar ég síðast sá hann, var hár, ljóshærður, bláeygður, í brúnum rifflaflauelsbuxum og í hvítum bol. Sá annar þegar ég síðast sá hann var…“
og þannig heldur nr.1 áfram og lýsir einhverjum þremur karlkyns-persónum sem viðmælandi þekkir örugglega). Og svo endar hann á að segja: „Hverjum viltu lifa og deyja með, hverjum viltu ganga með og hverjum viltu kasta?“ Þá verður nr. 2 að gera upp hug sinn og svara spurningunni.
Góða skemmtun!
