Lóan
23. apríl, 2026
Þrá
23. apríl, 2026
Lóan
23. apríl, 2026
Þrá
23. apríl, 2026

1. maí 1981

Er mönnum heilsar morgunn, unaðsfagur,
á margra vörum bærist óskin sú
að upp sé runninn okkar vonardagur
sem efli samhyggð, réttlæti og trú.

Þá trú að þeir sem lifa í þessu landi
til lífsins hafi allir sama rétt,
að Íslendingar tengist tryggðabandi
og treysti sjálfstæðið sem var þeim rétt.

Því eitt er víst að engar þjóðir geta
þá auðnu fundið sem í heimi býr
ef tekst þeim ei að mæla það og meta
sem mannshöndina gjörvu áfram knýr.

Og ykkur sem að vinnið hörðum höndum,
en hafið oft að gróða setið hallt,
ég bið þann Guð sem stjórnar lýði og löndum
að launa verkin aftur, þúsundfalt.