Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Augun þín

Augu þín, fá dimmu í dagsljós breytt
Augun þin fá sorgarskýjum eytt.
Ljómi þau er allt svo undur bjart
að ég því trúi vart
að mér þau segi satt.

Þó eru augun þin svo full af tærri tryggð
og tállaus yfirskyggð af ást.
Augun þín þau birta eitt og allt
segja þúsundfalt að þú sért ástin mín.

Burt rekur þú frá mér sérhverja sorg
syng ég því glaðvær um stræti og torg
vegsama allt sem þau tjá
og ég á, geymt í hjarta mínu.