Sólaróður
23. apríl, 2026Þakkir
23. apríl, 2026Álfkonan
Litla ský er leikur ofar sænum,
löngum, heitum sumardögum á,
þegar áfram ber þig nú með blænum
borgum álfa muntu fara hjá.
Viltu bera kveðju kristnum manni,
kærleiksríka’ er dreypir þú hans mund,
því ég beðið hans í heimaranni
hef svo lengi í von um endurfund.
Ástardraum við eigum flest,
aldrei gleymum þeim sem skilur best.
Því ég bið þig bjarta ský
berðu heita kveðju mannheimana í.
Þeir sem fæðast huliðsheima veldi
hafa sjaldan ráð á eigin för.
Þó að dreymi’ um ást á kyrru kveldi
kærleikans ei finna heita vör.
Ó, hve vildi ég meyjan mennska vera,
mínum ástvin löngum dvelja hjá,
finna nálægð hans og heita bera
hjartans mestu ólgufullu þrá.
