Forsetakosningar árið 1980
23. apríl, 2026
Nú frelsarinn er fæddur
23. apríl, 2026
Forsetakosningar árið 1980
23. apríl, 2026
Nú frelsarinn er fæddur
23. apríl, 2026

Afrakstur næturvöku

Það er ekki heiglum hent
að henda saman vísu.
Þó ég hafi krökkum kennt
ég kenni ei „Ljóða-Dísu”.

——-

Ég er að reyna að yrkja prósa
en ekkert gengur,
því hljómar mér sem leiftrið ljósa
ljóðastrengur.

——–

Á borðinu er blaðið hvítt,
best að krota á það.
En í huga ekkert nýtt
ennþá kemur.  Þá það.

———

Ekkert sef ég nú í nótt,
nýt þess eins að vera til.
Er mig vefur húmið hljótt
hlýjuna ég finna vil.