Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Fjórir kátir þrestir
Fjórir kátir þrestir sátu saman á kvist
vorljóðin sin sungu af lyst
bæði söng um ást og unað , yndi og ró
bú sitt í björtum skóg
Ef þú kemur hér, þegar kvölda fer,
muntu heyra þann sönginn sem ég ann;
Tra,la,la,la,la,la,la,la,la,la,la,
tra,la,la,la,la,la,la,la,la,la,la,
fyrir þig kveða þeir vísurnar sínar vorkvöldin löng.
Tra,la,la,la,la,la,la,la,la,la,la,
tra,la,la,la,la,la,la,la,la,la,la,
harmarnir flýja ef hlustarðu á þeirra söng.
Fjórir kátir þrestir sátu saman á grein,
hægt færðist nær haustið í leyn.
Litlir fuglar urðu fleygir,
unaður nóg , ljúft var í laufgum skóg.
Ef þú kemur hér þegar kvölda fer o.s.frv. ................
