Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Og þá stundi Mundi
Hann Mundi á sjóinn í fyrsta sinn fór
Á fjórtánda árinu, lítill og mjór
Og það sem hann dró hirti húsbóndi hans
og hét því að koma´honum þannig til manns
Og þá stundi Mundi:
„Þetta er nóg! Þetta er nóg!
Ég þoli ekki lengur
að þvælast á sjó.“
Hjá Munda var lítið um leik eða hvíld.
Hann lenti eftir fermingu norður á síld
og síðan á línu og síðan á net
og síðan á línu og aftur á net.
Og æska hans leið, og hann vann og hann vann,
því vinnan hún „göfgar og bætir hvern mann.“
En lítið var það sem úr býtum hann bar
því bláblönk að jafnaði útgerðin var.
Hann varð af því hokinn, hann varð af því grár
að velkjast á togurum þrjátíu ár.
Í stórsjó og ágjöf hann stóð sína plikt
með sting fyrir brjósti og króníska gigt.
Í hífingu eitt sinn hann hentist á vír
og hurfu þar fingur hans, tveir eða þrír.
Í annað sinn bobbing hann oná sig fékk,
og eftir það haltur og skakkur hann gekk.
Til fimmtugs hann þraukaði en þá fékk hann slag
en það gerðist einmitt á sjómannadag.
Og sungið var þá eins og sungið er enn
um særokna vindbarða hrafnistumenn.
Jónas Árnason
